|
Kartöflusúpa úr Þykkvabæ: |
|
|
|
Hálft kíló Þykkvabæjar skyndikartöflur
2 teningar grænmetiskraftur
1 teningur kjúklingakraftur
1 púrrulaukur
1 laukur
1 rauðlaukur
3 gulrætur
1/2 askja sveppir
1 rauð paprika
3 rif hvítlaukur
1 dós rjómaostur 400 gr.
1 ferna matreiðslurjómi
Soja og jurtasalt eftir smekk
Kartöflurnar skornar í tenginga og hitaðar í vatni þannig að vatnið fljóti vel yfir.
Grænmetisteningurinn settur útí. Grænmetið steikt á pönnu og síðan sett útí soðið hjá kartöflunum þegar þær eru soðnar. Soðið saman í smá tíma ásamt rjómaostinum.
Borið fram með nýbökuðu brauði.
|
|
|
Sykur gljáðar Þykkvabæjar kartöflur í stórveisluna |
|
|
|
Í ca 10 kg. Forsoðnar Þykkvabæjar kartöflur
1200 gr sykur
brúna hann vel í potti
300 gr Smjörvi
setja útí brúnaðan sykurinn
ca 1 ltr Vatn
1 poki 3 kg af forsoðnum kartöflum skola að þeim sterkjuna og hita í leginum
síðan næsti poki þegar vantar meiri kartöflur á borðið og s.v.framv.
Gangi ykkur vel
|
|
|
Þykkvabæjar Pestó-kartöflur |
|
|
|
- góðar með steiktu kjöti, kjúklingi og fiski, eða einar sér með salati og brauði
500 g Þykkvabæjar forsoðnar kartöflur
1 msk olía
1/2 laukur, saxaður smátt
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
4-5 tómatar, vel þroskaðir, saxaðir
2 msk pestósósa
nýmalaður pipar
salt e.t.v. nokkur söxuð basilíkulauf
Olían hituð í potti og laukur og hvítlaukur látinn krauma við meðalhita í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Meirihlutanum af tómötunum bætt í pottinn ásamt kartöflum og pestósósu. Látið malla áfram við vægan hita þar til kartöflurnar eru heitar í gegn og tómatarnir soðnir í mauk. Þá er sósan krydduð með pipar og salti eftir smekk og síðan er afganginum af tómötunum hrært saman við, ásamt basilíkunni ef hún er notuð. Látið malla í 1-2 mínútur í viðbót.
|
|
|
Þykkvabæjar Karríkartöflur |
|
|
|
- góðar með ýmsum indverskum réttum eða bara með naan-brauði og salati
500 g Þykkvabæjar forsoðnar kartöflur
1 msk olía
1 laukur, saxaður
1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
1 tsk karríduft, eða eftir smekk
nýmalaður pipar
salt
100 ml rjómi eða matreiðslurjómi
saxað kóríanderlauf eða steinselja
Olían hituð í potti og laukur og hvítlaukur látinn krauma við meðalhita í nokkrar mínútur án þess að brúnast. Karríduftinu hrært saman við ásamt pipar og salti og síðan er rjómanum hellt saman við og kartöflurnar settar út í. Látið malla við vægan hita þar til kartöflurnar eru heitar í gegn. Hrært oft á meðan. Söxuðum kóríander eða steinselju stráð yfir og borið fram.
|
|
|
Þykkvabæjar Parmesan kartöflur |
|
|
|
- góðar með steiktum kjúklingi og kjöti, grænmetisréttum og mörgu öðru
500 g Þykkvabæjar forsoðnar kartöflur
4 msk nýrifinn parmesanostur
3 msk hveiti
nýmalaður pipar
salt
1/2 sítróna
2 msk ólífuolía
Ostur, hveiti, pipar og salt sett í skál. Börkurinn rifinn af sítrónunni og blandað saman við. Kartöflunum velt upp úr blöndunni. Olían hituð á pönnu, kartöflurnar settar á hana og steiktar við meðalhita þar til þær eru heitar í gegn og parmesanmylsnan er gullinbrún og stökk. Safinn úr sítrónunni kreistur yfir og borið fram.
|
|
|
Þykkvabæjar Tex-Mex kartöflur |
|
|
|
- svolítið sterkar og góðar með alls kyns mexíkóskum mat eða einar sér með tortilla-flatkökum, salati og sýrðum rjóma.
500 g Þykkvabæjar forsoðnar kartöflur
1 msk olía
1/2 laukur, saxaður
1 krukka tacosósa, styrkleiki eftir smekk
100 g spergilkál, skipt í litla kvisti
100 g blómkál, skipt í litla kvisti
nýmalaður pipar
salt
1 límóna (lime)
e.t.v. chilipipar
söxuð kóríanderlauf
Olían hituð í potti og laukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur við meðalhita. Kartöflurnar settar út í og síðan tacosósan, spergilkálið og blómkálið. Kryddað með pipar og salti og látið malla í 5-8 mínútur þar til kartöflurnar eru heitar í gegn og hitt grænmetið meyrt. Safi úr 1/2 límónu kreistur yfir, hrært, smakkað og e.t.v. bragðbætt með chilipipar. Kóríanderlaufi stráð yfir og borið fram með nokkrum límónubátum.
|
|
|
Þykkvabæjar bakaðar skyndikartöflur með sveppum |
|
|
|

1 kg Þykkvabæjar forsoðnar kartöflur
250 g sveppir
3 msk ólífuolía
1 tsk kartöflukrydd
nýmalaður pipar
gróft salt, gjarna Maldon
steinselja til skrauts (má sleppa)
Ofninn hitaður í 200°C. Kartöflunum dreift í nokkuð stórt, eldfast mót (þær eiga að vera í einföldu lagi) og sveppunum stungið á milli. Olíu, kartöflukryddi og pipar blandað saman og ýrt jafnt yfir. Grófu salti stráð yfir, sett í ofninn og bakað í 20-25 mínútur, eða þar til kartöflurnar eru gullinbrúnar. Meira salti stráð yfir og e.t.v. skreytt með steinselju.
|
|
|
Þykkvabæjar Steinseljukartöflur |
|
|
|
- klassískar og góðar með næstum hverju sem er.
500 g forsoðnar Þykkvabæjar kartöflur
2 msk hveiti
nýmalaður pipar
salt
30 g smjör
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt (má sleppa)
hnefafylli af saxaðri steinselju
Kartöflunum velt upp úr hveiti, krydduðu með pipar og salti. Smjörið brætt á pönnu og kartöflurnar settar út í ásamt hvítlauknum. Látnar krauma við ríflega meðalhita þar til þær eru heitar í gegn og farnar að taka lit. Steinselju stráð yfir, látið krauma í 1 mínútu í viðbót og síðan borið fram.
|
|
|
Þykkvabæjar bakaðar skyndikartöflur með rauðu pestói |
|
|
|
- gott með alls konar steiktu kjöti og fuglakjöti.
1 kg Þykkvabæjar forsoðnar kartöflur
2 msk olía
2 msk smjör, bráðið
2 msk rautt pestó (og meira til að bera fram með kartöflunum)
nýmalaður pipar
salt
Ofninn hitaður í 220°C. Olía, smjör og 1 msk af rauðu pestói sett í eldfast fat. Kartöflurnar settar út í og hrist vel til að þekja kartöflurnar í blöndunni. Kryddað með pipar og salti, sett í
|
|
|
Þykkvabæjar Kartöflusalat með lauk og graslauk, borið fram með kjúklingabringu |
|
|
|
(fyrir 2)
Ofnsteikt kjúklingabringa:
2 kjúklingabringur
nýmalaður pipar
salt
1/2 tsk. ítölsk kryddjurtablanda
2 msk. ólífuolía
Ofninn hitaður í 220°C. Kjúklingabringurnar kryddaðar með pipar, salti og kryddjurtablöndu. Eldfast fat penslað með olíu, bringurnar lagðar í það, afganginum af olíunni hellt yfir, sett í ofninn og steikt í 18-20 mínútur, eða þar til bringurnar eru steiktar í gegn (best að skera í aðra þar sem hún er þykkust til að tryggja að hún sé gegnsteikt). Bornar fram með kartöflusalatinu og e.t.v. nokkrum basilíkublöðum.
|
|
|
Þykkvabæjar kartöflu eggjakaka |
|
|
|
- einfaldari geta matarmiklar eggjakökur ekki orðið. Þessa er hægt að nota bæði sem skyndibita með salati og meðlæti með t.d. pylsum.
1 dós Þykkvabæjar kartöflusalat með lauk og graslauk
1 msk olía
3 egg
nýmalaður pipar
salt
Olían hituð á pönnu (helst teflon-húðaðri), kartöflusalatið sett á pönnuna og látið krauma við vægan hita í nokkrar mínútur, þar til salatið er heitt í gegn. Hrært oft á meðan. Eggin brotin í skál, þeytt létt með pipar og salti og síðan er eggjunum hellt yfir kartöflumassann á pönnunni. Látið krauma áfram þar til eggin hafa stífnað og hrært stöðugt á meðan. Eggjakökunni er svo rennt yfir á disk og hún borin fram.
|
|
|
Þykkvabæjar Kartöflusalat með sólþurrkuðum tómötum og ólífum, borið fram með steiktum laxi |
|
|
|
|
(fyrir 2)
Steiktur lax:
4-500 g laxaflak með roði, helst hnakkastykki
nýmalaður pipar
salt
1/2 sítróna
1 msk smjör
1 msk olía
Laxinn skorinn í 3-4 cm breiðar sneiðar, kryddaður með pipar og salti og sítrónusafi kreistur yfir. Látinn standa smástund. Smjör og olía hitað á pönnu og laxinn settur á hana með roðhliðina niður. Steiktur við góðan hita í 2-3 mínútur og síðan er hitinn lækkaður og
|
|
|
Þykkvabæjar Kartöflusalat-gratín |
|
|
|
|
Þykkvabæjar - kartöflusalatið með sólþurrkuðu tómötunum og ólífunum er líka frábært í gratín sem bera má fram t.d. með steiktu kjöti eða kjúklingi, pylsum og fleiru, eða eitt sér með salati.
1 dós kartöflusalat með sólþurrkuðum tómötum og ólífum
nýrifinn parmesanostur (eða annar ostur eftir smekk)
Ofninn hitaður í 200°C. Kartöflusalatið sett í lítið, eldfast mót. 1-2 msk af rifnum osti stráð yfir. Sett í ofninn og bakað í 15-20 mínútur, eða þar til það er heitt í gegn og yfirborðið hefur tekið lit.
|
|
|
Steiktar fennikkukartöflur |
|
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
500 g Þykkvabæjar skyndikartöflur 1 stk. fennikka 2 stk. gulrætur, stórar 50-100 g smjör 1-2 dl kjúklingsoð 8 msk. hjartahnetur (cashewhnetur) 3-4 msk. matarolía salt og pipar
Skerið kartöflurnar í sneiðar, fennikka og gulrætur eru skornar gróft. Hitið olíuna vel, steikið kartöflusneiðarnar í 2-3 mín. ásamt grænmetinu. Steikið áfram í 2-3 mín., setjið smjörið út á pönnuna, hellið kjúklingasoðinu yfir og sjóðið niður. Hjartahneturnar fara út í undir lokin.
|
|
Þetta gamla, góða salat er frábært meðlæti með köldum mat, sérstaklega kjöti. Ómissandi réttur með grillinu.
1 kg Þykkvabæjar skyndikartöflur skerið í sneiðar 3 dl majones 1/2 dl sætt sinnep 1/2 dl sýrðar agúrkur, saxaðar salt og nýmalaður pipar 1/2 stk. paprika, rauð 1 stk. laukur 4 stk. egg, harðsoðin salt og pipar söxuð steinselja.
Hrærið saman majonesi, sinnepi og sýrðum agúrkum. Bragðbætið með salti og pipar. Saxið laukinn og setjið í sjóðandi vatn í nokkrar sekúndur, hellið í sigti og kælið. Skerið paprikuna í strimla og bætið í sósuna ásamt lauknum. "Klippið" eggin út í með eggjaskera (þ.e. á báða vegu) og endið á því að setja kartöflurnar og steinseljuna í.
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
1 kg Þykkvabæjar skyndikartöflur smjör sykur mjólk salt og pipar 1 stk. eggjarauða
Sjóðið skyndikartöflurnar í 5 mínútur, lagið þykka kartöflumús úr kartöflunum, smjöri, sykri, mjólk og kriddið með salti og pipar. Sprautið kartöflumúsinni í toppa á bökunarplötu. Penslið með hrærðri eggjarauðu og gljáið í ofni við 200¡C uns fallega brúnt.
|
|
Gott er að setja svartar ólífur og nýrifinn parmesanost í salatið.
1 kg Þykkvabæjar skyndikartöflur 2 dl ólífuolía 1-2 msk. paprikuduft 1 dl sýrðar agúrkur, fínsaxaðar 2 dl grænar ólífur, skornar í fernt 1/2 dl kapers 2 stk. rauðlaukar, litlir salt og pipar
Skerið kartöflurnar í bita og setjið í skál. Blandið saman ólífuolíu og paprikudufti og kryddið með salti og pipar. Blandið öðrum efnum saman við olíuna og hrærið vel saman. Hellið yfir kartöflurnar og blandið vel saman. Látið standa í 3-4 tíma áður en borið er fram.
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
1 kg Þykkvabæjar skyndikartöflur 100 g gráðaostur 100 g hveiti 2 stk. egg 2 dl muldar heslihnetur salt og pipar
Hitið kartöflurnar í sjóðandi vatni í 5 mínútur , maukið í hrærivél ásamt gráðaostinum, kryddið. Mótið egglaga kökur með matskeið og veltið upp úr hveiti, hrærðu eggi og muldum hnetum. Smjörsteikið fallega brúnt á pönnu.
|
|
|
Kartöflukaka með stráþaki |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
750 g Þykkvabæjar skyndikartöflur 60 g smjör 1 msk. sykur 1 stk. egg 1/2 stk. blaðlaukur 1 dl rjómi 2 stk. hráar kartöflur, rifnar salt og pipar
Sjóðið kartöflurnar í 5 mínútur og maukið eins og venjulega kartöflumús, kryddið með salti, pipar og sykri. Skerið blaðlaukinn smátt niður, skolið og steikið síðan í hluta af smjörinu við vægan hita í 2 mínútur. Setjið afganginn af smjörinu út í kartöflumaukið. Hellið rjómanum á pönnuna og hellið saman við kartöflumaukið. Kælið ögn ef þörf krefur. Hrærið eggin út í blönduna, setjið allt í lítið, smurt eldfast mót og bakið í 15-20 mínútur við 175¡C hita á blæstri (190¡C án blásturs). Afhýðið nú og rífið hráu kartöflurnar í strá með rifjárni og veltið þeim upp úr ögn af matarolíu. Þegar bökunartíminn á kartöflukökunni er u.þ.b. hálfnaður er kartöflustráunum dreift yfir. Til þess að fá stráþakið fallega brúnt er ofninn stilltur á grill í stutta stund.
|
|
|
Kartöflu- og fennikkuflauel |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
300 g Þykkvabæjar skyndikartöflur 200 g smátt skorin fennikka 100 g smjör 50 g rjómaostur 1 tsk. fennikkuduft salt og pipar ögn sykur
Sjóðið fennikkuna í 20 mínútur. Sjóðið kartöflurnar í 5 mínútur Merjið kartöflurnar í gegnum sigti, maukið fennikkuna í matvinnsluvél, setjið hvort tveggja í pott ásamt smjörinu, rjómaostinum og bragðbætið með salti og pipar og ögn af sykri.
|
|
|
Kartöflu- og kóríandersúpa |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
250 g Þykkvabæjar skyndikartöflur 4 stk. hvítlauksrif 200 g laukur 4 msk. ólífuolía 1-1/2 l kjúklingasoð (vatn og 3 Knorr-teningar) 6-8 msk. kóríander lauf
Saxið lauk og hvítlauk, skerið kartöflurnar í sneiðar. Léttsteikið lauk og hvítlauk í olíu, brúnið ekki. Bætið kjúklingasoði og kartöflum á pönnuna og sjóðið í 30 mínútur. Sett í matvinnsluvél og maukað. Borið fram með heilum eða söxuðum kóríanderlaufum.
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
1 kg. af Þykkvabæjar skyndi kartöflum. 1 bolli haframjöl Season All hvítlaukur eftir smekk paprikkukrydd hnífsodd af chilli frugol ( jurtakraftur, fæst í flestum stórmorkuðum). Kartöflur settar í hrærivél ásamt bolla af haframjöli. Krydd: Season All, hvítlaukur, paprikukrydd, hnífodd af chilli, frugola ( jurtakraftur, fæst í flestum stórmökuðum ).
Þetta er allt hrært saman á hægasta hraða vélarinnar þar til verður úr deig. ATH. Haframjöli er bætt út í skálina þar til deigið er orðið þannig að hægt er að móta, buff eða bollur í höndunum án þess að lenda í miklum klísturvandræðum. Brauðraspur. Þegar búið er að móta buffið er því velt upp úr raspi
(engin mjólk, ekkert egg) og steikt á pönnu í góðri olíu. ( Best er að snögg-steikja buffin á stillingu 5 í 2-3 mín. á hvorri hlið, aðrir vilja hægari steikingu.)
ATH. Haframjölið eyðir bragði, ef búið er að krydda deigið áður en haframjölið fer út í þá eyðist það bragð. Kryddið því eftir haframjölið.
|
|
|
Kartöflu og spergilkálssalat |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 6
4 meðalstórar Þykkvabæjar skyndikartöflur 1 búnt spergilkál (brotið í litla kvista) 1/4 b grænmetis eða salatolía 1/4 b sítrónusafi 1/4 tsk hvítlauksduft 3/4 tsk salt 1 tsk basilka 1/4 tsk sterk piparsósa (tabasco) 2 sjallottulaukar, sneiddir
Matreiðsla
Hitið skyndikartöflurnar, og skerið í teninga. Sjóðið spergilkálið þar til meyrt. Haldið hvoru tveggja heitu. Sameinið afganginn af hráefninu og hitið að suðu, hrærið í á meðan. Hellið yfir kartöflurnar og spergilkálið og hristið varlega saman. Þetta salat er líka gott kalt.
|
|
|
Kartöflu & púrrulaukssúpa |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
1 saxaður laukur 500 g saxaðar Þykkvabæjar skyndikartöflur
1 saxaður púrrulaukur 960 ml kjúklinga eða grænmetissoð
1/4 tsk hvítur pipar
1 msk saxaður graslaukur
1/2 dl söxuð fersk steinselja
Setjið fyrstu fimm atriðin saman í pott. Lokið og hitið að suðu. Látið sjóða í 30 mínútur.
Færið innihald pottsins í matvinnsluvél og maukið þar til kekkjalítið.
Hrærið graslauk og steinselju saman við og berið fram.
|
|
|
Fyrir 4 sem forréttur eða smáréttur
2 msk ólífuolía 1 1/2 msk sítrónusafi 4-6 hvítlauksrif, söxuð smátt 100 g grænar hvítlauksólífur 1/2 kg forsoðnar Þykkvabæjar skyndikartöflur skornar í teninga, kryddjurtir eftir smekk en ferskt basilikum er ómissandi salt og nýmalaður svartur pipar
Matreiðsla
Kartöflur og ólífur settar á fat. Sítrónusafa og olíu með hvítlauknum hellt yfir, malaður pipar og kryddjurtir síðast. Borið fram með brauði og góðri rauðri pestósósu.
|
|
|
Þessi réttur hentar vel með t.d. lambalæri, hamborgahrygg og hefur þú prófað hann með steiktum fiski í rjómasósu að hætti Laufeyjar?
1 kg skyndi kartöflur
8 msk. sykur
1 desil. rjómi.
Takið kartöflurnar úr pokanum og hellið á sigti og skolið með köldu vatni, þerrið ekki. Setjið sykurinn á pönnu og bræðið þar til hann verður brúnn gætið þess að ofhita hann ekki, hellið þá rjómanum útí og síðan kartöflunum hitið smá stund.
|
|
|
Þessi réttur hentar vel með nautakjöti.
Hráefni
1 kg Skyndi kartöflur
80 gr Smjör
1 matsk.Olívuolía
Season All
( ath Olívuolíunni má sleppa en smjörið brennur síður ef hún er notuð með.)
Takið kartöflurnar úr pokanum og hellið á sigti og skolið með köldu vatni.
Hitið smjörið og olíuna á pönnu setjið kartöflurnar útí kryddið með Season All (ath það má krydda nokkuð vel) og steikið þar til kartöflurnar eru gullin brúnar.
|
|