|
|
|
|
Fylltar kartöflur með osti |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
8 stk.Þykkvabæjar Grillkartöflur 4 msk. smjör 2 stk. eggjarauður 1/2 dl rjómi salt og pipar 1/4 tsk. múskat, rifið eða duft ca 100 g rifinn ostur paprikuduft
Bakið Grillkartöflurnar í 200¡C heitum ofni í 10 mín. Skerið lok af þeim langsum og skafið innan úr þeim með skeið. Maukið með eggjarauðum, heitum rjóma, kryddi og smjöri í skál þar til blandan hefur samlagast. Setjið með skeið í kartöflubátana, stráið rifnum ostinum yfir og svo paprikudufti. Bakið við 200¡C þar til kartöflurnar eru orðnar vel brúnar.
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
8 stk. Þykkvabæjar Grillkartöflur 1 msk. saxað rósmarín, ferskt 1/2 dl ólífuolía salt
Skerið kartöflurnar í 3 mm þykkar skífur, dreifið í smurða ofnskúffu. Penslið með ólífuolíu og stráið yfir salti og rósmarín. Bakið við 180¡C í 12 mínútur á blæstri (200¡C án blásturs).
|
|
|
Bökuð grill kartafla með púrrulauk |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
4 Þykkvabæjar Grillkartöflur 1 lauk,smátt saxaður 1/2 púrrulaukur, smátt saxaður 1 msk. olívuolía 1 msk. smjör 1 tsk. jurtasalt 1/2 tsk svartur pipar 2 hvítlauksrif marin 1 tsk. tímían 200 g rjómaostur 2 eggjarauður hnefafylli steinselja 4 msk. rifin ostur
Penslið kartöflurnar með olíu og stingið gat á þær með prjóni, bakið við 200¡C í 2o mín eða 15 mín á grilli ath. snúið þeim af og til ef grillið er notað. á meðan þær bakast steikið saxaðan lauk, hvítlauk og púrrulauk við vægan hita un laukurinn er orðin meyr. Bætið tilheyrandi kryddi, ostinum og eggjarauðunum saman við laukhræruna. Hrærið öllu vel saman, haldið volgu. Þegar kartöflurnar eru bakaðar skerið þær í tvennt eftir endilöngu takið inna úr þeim kartöflukjötið og búið til stöppu, blandið öllu saman og fyllið kartöfluskeljarnar með fyllingunni. Stráðið steinselju og osti yfir hverja fyllingu og bakið í ofni við 160¡C í 15 mínútur.
|
|
|
Fylltar kartöflur m/bacon og vorlauk |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
stk.Þykkvabæjar Grillkartöflur 4 sneiðar beikon 1 stk. vorlaukur (saxaður) 1 stk. rauðlaukur (saxaður) 1 stk. rauð paprika (söxuð) 1/2 tsk. paprikuduft 2 msk. sýrðar, saxaðar agúrkur 1 msk. sætt sinnep salt og nýmalaður pipar 50 g mozarella ostur 1 dl sýrður rjómi 2 msk. dijonsinnep
Matreiðsla
Bakið kartöflurnar í 15 mín við 200¡c.
Bakaðar kartöflurnar skornar í tvennt og skafið innan úr þeim. Beikonið er steikt á pönnu ásamt grænmeti, kryddað með salti og pipar og síðan kælt. Þessu er hrært saman við sýrðan rjóma, kartöflumaukið, sýrðu agúrkurnar og kryddinu stráð yfir. Þetta er sett ofan í kartöflurnar og mozarella ostinum stráð yfir. Kartöflurnar eru síðan hitaðar upp 200¡C heitum ofni í 10-15 eða þar til osturinn er orðin gullin brúnn.
|
|
|
Þykkvabæjar grillkartöflur grillaðar í sneiðum |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4 4 stk. Þykkvabæjar grillkartöflur með olívuolíu, salti og pipar Kartöflurnar eru skornar í 2 sm sneiðar og penslaðar með olíu. Grillið þær síðan í 2-3 mínútur á hvorri hlið, kryddaðar með salti og pipar. |
|
|
Bakaðar forsoðnar grillkartöflur |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
2 msk majónes
a dós kotasæla
1 msk. sinnep
2 msk. graslaukur
1 tsk. jurtasalt
1/2 tsk. hvítur pipar
4 msk. kurlaður ananas
Takið filmuna af bakkanum penslið kartöflurnar með olíu og stingið gat á þær með prjóni setjið bakkan inni 200C heitan ofn í 20 mínútur. Á Útigrilli takið Grillkartöflurnar úr bakkanum penslið með olíu stingið gat á þær með prjóni og setjið á grillið í 15 mínútur snúið af og til. Aldrei að setja Bökunar eða Grillkartöflur í álpappír þá,sjóðið þið þær að mestu og fáið ekki þetta góða bragð. Með er gott að setja ofaní þær,smjör, kryddsmjör,sýrður rjómi allt eftir smekk eða ýmsar sósur t.d. þessi.
Hrærið saman majónesi, sinnepi, kotasælu og tilheyrandi kryddi. Bætið við kurluðum ananasi látið standa í 1- 2 tíma í kæli Þessa sósu er gott að eiga í ísskápnum.
|
|
|
Bakaðar grillkartöflur með reyktum laxi og ostasósu |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
4 stk. Þykkvabæjar Grillkartöflur 100-120 g reyktur lax sneiddur í 8 miðlungsstórar sneiðar 8 stk. salatblöð 12 stk. spínatblöð olía til penslunar
Ostasósa
50 g sýrður rjómi 50 g rjómaostur 50 g gráðaostur 2 msk. söxuð fersk steinselja 2 msk. smátt skorinn graslaukur
Matreiðsla
Penslið kartöflurnar með olíu og stingið gat á híðið með prjóni, bakið við 200¡C í 20 mín.
Ostasósa
Blandið saman í matvinnsluvél, sýrðum rjóma, rjómaosti, gráðaosti, steinselju og graslauk. Hrærist vel í 3-5 mínútur. Spínatblöðin skoluð í köldu vatni og skorin í strimla. Salatblöðin skoluð í köldu vatni. Þegar kartöflurnar eru fullbakaðar, eru þær teknar úr ofninum, látnar rjúka lítið eitt, skornar í tvennt, holaðar að innan og spínatinu blandað saman við kartöflukjötið. Sósa sett í kartöfluhýðið og síðan eru spínatkartöflurnar settar aftur í skelina. Sósa sett þar ofan á og að lokum er reykt laxasneið, rúllað í litla rós, sett ofan á.
Meðlæti, Salatblöð.
|
|
|
Bakaðar grillkartöflur með beikonfyllingu |
|
|
|
Uppskriftin er fyrir 4
Hráefni
4 stk. Þykkvabæjar Grillkartöflur 4 sneiðar beikon 50 g rjómaostur 50 g rifinn brauðostur salt og pipar
Penslið kartöflurnar með olíu og stingið gat á híðið með prjóni, bakið við 200¡C í 20 mín.
Látið þær kólna aðeins, skerið lok ofan af kartöflunum, holið þær að innan með skeið og látið kartöflumaukið í skál. Steikið beikonið stökkt á pönnu og skerið það svo í bita. Blandið rjómaostinum og beikoninu saman við kartöflumaukið og kryddið með salti og pipar. Fyllið kartöfluskeljarnar með fyllingunni og stráið rifna ostinum yfir. Bakið í 15 mínútur í ofni (175¡C).
|
|
|
Bökunarkartöflur með rjómaostfyllingu |
|
|
|
|
Þessi réttur hentar vel með öllum steikum.
Hráefni
8 forsoðnar bökunarkartöflur frá Þykkvabæjar.
150 gr. rjómaostur.
1 peli rjómi.
2 tsk. Season All krydd.
Bakið bökunarkartöflurnar þannig að til hægara sé að ná innan úr þeim skerið þunnan hatt ofan af kartöflunum, skafið innan úr þeim og setjið í hrærivélarskál, bætið við rjómaostinum, kryddinu og rjómanum og hrærið vel saman.
Innihaldinu er svo sprautað í tómar kartöfluskelarnar og bakað við 220 C í 20 mín. eða þar til kartöflurnar eru fallega gullbrúnar.
|
|
| |
|
|